AppRecs review analysis
AppRecs rating 5.0. Trustworthiness 0 out of 100. Review manipulation risk 0 out of 100. Based on a review sample analyzed.
★★★★★
5.0
AppRecs Rating
Ratings breakdown
5 star
100%
4 star
0%
3 star
0%
2 star
0%
1 star
0%
What to know
✓
High user satisfaction
100% of sampled ratings are 5 stars
About Lærum og leikum með hljóðin -D
Ef þú ætlar að kaupa smáforritið með ölllum hljóðunum velur þú Lærum og leikum með hljóðin - ALLT. Auðveldar allar seinni uppfærslur.
Smáforritið, Lærum og leikum með hljóðin ALLT, er ætlað öllum barnafjölskyldum og fagfólki sem vilja veita börnum forskot á hljóðmyndun og undirbúa þau fyrir læsi. Tilvalið fyrir fjölskyldur af erlendum uppruna til að æfa og læra íslensku hljóðin. Rannsóknir sýna marktækan mun á árangri nemenda í 1. bekk í hljóðkerfisvitund og bókstafaþekkingu auk betri getu í heildina á orðaforða þegar skipulega var unnið með Lærum og leikum með hljóðin og Froskaleiki 1,2,3 á leikskólaaldri og í 1. bekk (Gudmundsdottir, 2014. Ævarsdóttir, 2016). Fjöldi erlendra viðurkenninga frá fagaðilum og foreldrum hafa verið veittar m.a. á BETT2016 sem eitt af sex bestu forritum í menntun og viðurkenning veitt hjá fagnefnd Educational App Store með afar lofsamlegum umsögnum.
Smáforritið, Lærum og leikum með hljóðin ALLT tekur mið af því í hvaða röð íslensk börn tileinka sér talhljóðin í máltökunni og hvernig auðveldast er að kenna hljóðin. Byrja má skipulega á auðveldari hljóðum sem koma fyrir hjá mjög ungum börnum og halda áfram yfir í þau hljóð sem erfiðara er að segja eða velja það hljóð sem æfa þarf sérstaklega hverju sinni.
Lærum og leikum með hljóðin er notað víða í leik- og grunnskólum á Íslandi og er sýnt í barnaefni Stöðvar 2.
Efnistök forritsins byggja á samnefndum bókum og námsefni Bryndísar Guðmundsdóttur talmeinafræðings.
Lærum og leikum með hljóðin ALLT inniheldur:
- Talsetning/söngur Felix Bergsson og Védís Hervör Árnadóttir
- Íslenskar teikningar Búa Kristjánssonar og Höllu Sólveigar Þorgeirsdóttur
- 20 samhljóð í íslensku kynnt með táknmynd fyrir hljóðið
- Sérhljóð í íslensku kynnt sérstaklega
- Röð samhljóða fylgir sömu röð og íslensk börn tileinka sér talhljóðin í máltökunni
- Hægt er að velja í aðalvalmynd hvaða hljóð er valið hverju sinni ef ekki er stuðst við erfiðleikaröðina
- Hægt er að fá lýsingu á talfærastöðu fyrir hvert hljóð
- Öll hljóðin eru æfð í hljóðaleik með hljóðakeðjum; samhljóð með sérhljóði til að tryggja að barnið nái réttu hljóði
- Hljóðin æfð í framstöðu orða nema þau hljóð sem koma eingöngu fyrir í miðju og aftast í orðum
- Ð, NG og ,,mjúka” G, eru æfð aftast og í miðju orða
- R býður upp á meiri aðlögun og fleiri orð í framstöðu orða til að æfa (algengt að börn eigi erfitt með framburð R- hljóðsins)
- Þrír gagnvirkir leikir í framhaldi af orðaæfingum þar sem myndir koma á víxl til frekari æfinga
- Hrós veitt reglulega í forritinu
- Upptaka leyfð á orðum og setningum til að æfa og hlusta
- Skráning nemenda: nafn, aldur, kyn og netfang
- Stigagjöf inni í forritinu
- Árangur sýndur í %
- Skráning athugasemda inni í forritinu
- Upplýsingar um stöðu og athugasemdir má senda í netpósti
- Hægt er að prenta út samantekt niðurstaða (air print)
- Vistun með dropbox
Við þökkum eftirtöldum stuðningsaðilum fyrir að stuðla að betri málþroska og læsi íslenskra barna:
Mennta- og menningarmálaráðuneytið og Barnamenningarsjóður styrktu íslenska útgáfu Lærum og leikum með hljóðin, í smáforrit fyrir iPad (2013).
Eftirtalin fyrirtæki gerðu aðlögun smáforritanna í símaútgáfu mögulega: Novator, Norðurál, Hagar, KPMG Íslandi og HS Orka (2015).
Frekari upplýsingar:
http.www.youtube/laerumogleikum
www. laerumogleikum.is www. kidssoundlab.com
Lærum og leikum með hljóðin -D Screenshots
Tap to Rate:
Reviews for Lærum og leikum með hljóðin -D
JeannyUlter
The easy way to learn Icelandic sounds
We were in Iceland this summer. We wanted to learn some interesting Icelandic sounds - and were suggested the easy way. This App is great, although it has Icelandic info - it is amazing to find out how much we understand along with the great pictures. You can also change settings to English! - So: Takk fyrir thetta frabaer forrit!
Blonduhlid
Frábært kennsluforrit
Ég er bæði kennari og móðir drengja sem þurftu á sínum tíma á talkennslu að halda. Hér er komið frábært app sem ég mun bæði nýta í kennslu og heima fyrir litlu stelpurnar mínar. Ég er sérstaklega ánægð með það að geta skráð inn nemendur og eins að geta tekið upp. Vel gert!